17.09.2007 22:01:17 / huglist
síðustu helgi tóku sumir meðlimir Huglistar að vinna í jólakortagerð sem verða svo til sÖlu í byrjun desember og verður auglýst betur síðar. þessi markaður verður með málverkum teikningum og leirlist og jólaföndri og list frá meðlimum huglistar
Huglist er að setja sig í gírinn og ætla að vera einnig með til sölu smákökur og jafnverl lifandi tónlist ef hljómsveitin getur æft vegna húsnæðisleysis en við gerum allt sem við getum til að hafa þessa helgi sem skemmtilegasta þegar markaðurinn verður og Ziggi verður í jólafíling á skýinu sinu á svæðinu
kveðja Huglist i JÓLA GÍR
»
05.09.2007 21:49:42 / huglist
Eftir sýninguna í vor hefur Huglist verið að leita eftir aðstöðu til að geta unnið að list sinni, myndsköpun og tónlist. Huglist hefur kynnt sér aðstöðu í Punktinum og Lautinni en ekki er mögulegt fyrir hópinn að nýta sér það. Aðstaðan á Punktinum hentar ekki undir starf Huglistar og ekki er vilji til að gera hópnum kleyft að nýta aðstöðu Lautarinnar. Huglistar hópurinn hefur óskað eftir fundi með stjórn Lautarinnar og bíðum við eftir svari frá þeim.
Sýning er í gangi á Safnasafninu þar sem Finnur og Stefán sýna. Annari sýningu finns, Gegnum augu húsanna, er nýlokið á Kaffi Lísu á Hjalteyri.
Neðst á síðunni er nýr flokkur sem heitir Huglist Myndir. Þar eru myndir af Huglistarfundi 30. ágúst. Var þá grillað heima hjá Hallgrími. Einnig eru myndir af flutningi á Zigga, en hann er enn einusinni kominn með nýtt heimili.
Syningin í Safnasafninu er til hliðar í flokkinum Sýningin.
Kveðja, Huglist
»
16.06.2007 00:35:37 / huglist
ef ykkur langar að sjá myndbönd frá Hugaraflsdögunum þá voru
Huglistar listamenn með innlegg þar og það er hér til vinsti
tonlist ziggy´s freaks með 2 frumsamin lög og svo er ljóðalestur
einnig í myndformi hérna til vinstri neðst þar sem tveir úr hóp
huglistar fluttu frumsamin ljóð og hringhendur
kær kveðja Huglist 
»
30.05.2007 14:34:28 / huglist
Nú er kominn linkur héra til hliðar af smá myndasýningu af
huglistarsýningunni óður til augna og eyrna. Við erum að vinna í
því að setja meira hér inn. Huglist tók þátt í málþingi hugarafls
10-12 maí. Þar kynnti Hanna Gerður félagið og Atli og Stefán fluttu
ljóð. Hljómsveitin Ziggy's Freaks spilaði fjögur frumsami lög á
fimmtudag og föstudag. Það er unnið að því að klippa saman myndbönd
af málþinginu.
»
17.03.2007 13:10:33 / huglist
Sú stunt rennur upp í dag að sýningunni verður lokað. Það er
opið til sex og eftir það förum við að ganga frá. Það eru blendnar
tilfinningar hjá hópnum þessa dagana. Það er mikill söknuður því
þetta hefur verið mikið ævintýr og hamingja og mikill
lærdómur. Við vonum að sá lærdómur sé ekki eingöngu innan Huglistar
heldur einnig hjá þeim sem hafa aðstoðað okkur og þeim sem hafa
komið til að skoða sýninguna.
Huglist
»
08.03.2007 12:38:47 / huglist
Opnunin 3. Mars
gekk framar vonum. Yfir hundrað manns mættu.Bæjarstjóri
Akureyrar og Þorbjörg yfirmaður menntasmiðjunnar opnuðu
sýninguna. Í miðri dagskránni ruddist fram maður og fór í
ræðupúltið og færði Huglistarhópnum óvænta gjöf. Það var
Níels á Safnasafninu og færði hann hópnum bókagjöf og bauð
okkur að sýna í nýja síningarsal safnasafnsins á næsta ári.
Þá var komið að atriði Ziggy‘s freaks. Hljómsveitin flutti
lagið Huglist, óður til augna og eyrna við mikinn fögnuð.
Kaffisala var á opnuninni og gekk salam mjög vel. Það verður
kaffisala einnig um næstu
helgi.Sýningin stendur til 17. Mars og er opin alla daga.
Það er alltaf einhverjir félagar Huglistar á
svæðinu.
»
23.02.2007 17:50:09 / huglist
Þrír félagar Huglistar fóru í sumarbústaðarferð á þriðjudaginn
þeir Sigurður, Sigmar og Finnur.
Þar svömluðu þeir í heitapotti nánast allan sólarhringinn til ða ná
úr sér streitu og endurnæra sig
fyrir opnunina á Huglistarsýningunni. Þó var þetta ekki eintóm
slökun því nokkrar æfingar voru gerðar.
Kíkið á linkinn Æfingabúðir hérna til hliðar.
Núna er alvaran tekin við aftur og eru allir kófsveittir í
undirbúningi fyrir sýninguna. Eftir helgi byrjar uppsetningin.
Hljómsveitin Ziggy's Freaks ætlar að æfa alla helgina. Nágrannarnir
verða án efa mjög ánægðir með það.
Kaffihópurinn er kominn í gírinn og eru pönnukökurnar bakaðar
á þremur hellum. og ekki er þverfóta í Álfabyggð fyrir rjóma og
sultum.
Ziggy Stardust fígúran var sett upp á Glerártorgi í kvöld. Finnur
og sigurður fóru í það með aðstoð Sigga og Pálínu. myndirnar af því
eru hér til hliðar.
Huglist
»
19.02.2007 15:38:16 / huglist
»
17.02.2007 18:29:39 / huglist
Nú er
Huglistarhópurinn komin með bráðabirgðasíðu og hér koma allar
heitustu fréttirnar af hópnum. Undirbúningur sýningarinnar
gengur vel og það hreinlega stefnir allt í það að allt verði
klárt fyrir opnunina 3.
Mars.Nú er búið að stofna hljómsveit Huglistar og heitir
hún Ziggy‘s Freaks. Meðlimir hennar eru Finnur (rafgítar),
Atli (kassagítar), og Sigurður (bassi). Þetta er sosum ekkert
fast mótað. Finnur á það til að taka bassann og nú er komið
trommusett í álfabyggðina og þar sem atli er eini
trommuleikarinn í hópnum þá kemur hann til með að tromma
eitthvað. Öllum í Huglist er velkomið að taka þátt í
hljómsveitinni. Myndir af æfingum eru til
hliðar.
Unnið er að því að
setja upplýsingar um alla félaga Huglistar hér
inn.
Huglist.
»
14.02.2007 00:02:13 / huglist
»